well ákvað að starta smá bloggi þar sem mér leiddist....
Ég, Rúnar og Elli skelltum okkur suður nú um síðustu helgi, var sú
helgi mjög áhugaverð, áfengisbann var á leiðinni suður þar sem Rúnar
varð virkilega fullur síðast þegar við fórum útaf því hann var að reyna
að ná okkur í drykkju og þar af leiðandi þurfti ég að keyra smá spöl..
en annars var hið venjulega stopp í ríkinu á Blönduósi ( hvernig sem
þetta er skrifað

)
er í bígerð að það verði hefð á leið suður, þegar suður var komið
opnaði ég strax minn fyrsta öl og svo var haldið til bróður míns í mat
og var étið vel af kjötsúpu, síðan lá leiðin til Pabba Elvars og þar
sem drykkjunni var haldið áfram hjá hinni gullfallegu systir Ella,
kynntist nokkrum áhugaverðum manneskjum svo sem pólskri stúlku sem fór
endalaust í taugarnar á mér..... vá sú stúlkukind var allt of drukkin,
Hún og Rúnar voru álíka full þannig að þau pössuðu ágætlega saman, við
fórum síðan niður í bæ og byrjuðum að fara á prikið minnir mig, þar sem
Rúnar bauð upp á skot, ég var við það að missa mig á tímabili við
pólsku stúlkuna en róaðist svo niður þegar við hittum Vidda
littla sem var ótrúlegt en satt ekki drukkinn, gerðist svo sem ekki
margt markvert það kveldið nema mar varð að koma kallinum hennar Önnu
heim ( systir Ella ) drakk aðeins of mikið, Vaknaði daginn eftir með
mestu þynku sem ég hef upplifað, Rúnar og systir hanns ákváðu að halda
á american style í hádeginu og þar sem ég átti erfitt með að tala

fór ég bara með, því er ekki frásögu færandi að þegar maturinn kom þá fór ég á klóstið

....
síðan var haldið í kringluna og þar snæddi ég á Hr.McDon.. og síðan
verslaði ég af mér fötinn... þetta kveld var aftur á móti áhugaverðara,
fórum með einhverri vinkonu ella niður í bæ og hittum þar bróðir hennar
sem er dyravörður sem ekkert vildi með hana hafa en tók mig og Rúnar
aftur á móti með sér á pöbbarölt vorum nokkurskona V.I.P engar raðir og
ves


enduðum á hressó þar sem gamanið hófst.... fyrst komumst við að þeirri
niðurstöðu að Rúnar væri of mikil pussy til að vera dyravörður, síðan
kom þessi rosalegi macho fílingur upp í okkur sem að fólst í því að
hann var að biðja mig um að kýla sig í andlitið. kallinn vildi
nátúrulega ekkert vera að slá kauðan sem var að koma okkur inn á staði
en þá fór hann að espa mig upp með því að slá mig og svona, endaði með
því að ég fékk ágætis högg í andlitið, þá náttúrulega var kallinn
ekkert sáttur og let eitt vaða framan í hann og með þeim afleiðingum að
tönn brotnaði og þá bjóst ég nú við barsmíðum en svo var nú ekki

..... hann tók því bara vel og gaf mér öl....
Dagin eftir vaknaði ég hress og síðan var lagt í hann og þar sem mar
var á leið norður fylltist bíllinn af pökkum frá ættmennum og Elli
kallinn fór nánast úr límingunum þegar hann komst að því að hann ætti
að sitja aftur í

. en allavega þá var honum hent út í staðarskála inn í bíl með sindra og þar sat hann sáttur..
well ég er farinn að sofa allt of mikið talað hérna núna cya.....